Prófíll

  • Nafn: jafetsigfinns
  • Staður: Fjörðurinn Fagri
  • Atvinna: Bæjarstarfsmaður með fullum krafti, það er töff
  • Hjúskaparstaða: Fastur við Tölvuskjáinn minn
  • Um mig: Ungur drengur með stóra drauma. Langar að flytja til Póllands. Uppáhaldslagið mitt er Sinfónía nr. 26 eftir Ludwig Van Bethoveen. Glasið er hálftómt, ekki hálffullt - bara svo það sé á hreinu.
  • Annað: it appears this little box contains the magic mirror!

Auglýsing

Innskráningar kubbur

baby can you fix me.

27. maí 2008 klukkan 18:48
Fix Me - Velvet

Jæja, er ekki bara kominn tími á annað blogg? Jú ég tel það ráðlegt. Hef ákveðið að nýta mér sólskinið til að blogga, þar sem að allir hafa gaman af því að lesa svona dót. bros bros. Eftir að hafa fylgst með Eurovision hef ég tekið mér inn nokkrar skemmtilegar ákvarðanir. Meðal annars þá að Grikkland inniheldur ótrúlega fallegt kvenfólk, og Spænska lagið er ægilega grípandi.

Annað mál á dagskrá er það að þessi sól er alveg að gera sig .. 20 stig er heldur ekkert neitt sérlega lítill hiti. Svo er líka rosalega gaman að sjá hvað allir eru sólbrunnir og svoleiðis - þá fyrst og fremst þessar t@ssur sem þykjast ætla til útlanda í ágúst :)

Ég held ég nenni ekkert að blogga mikið meira. Enda þetta á skemmtilegu gullkorni á la Tinna:

(á trampólíninu hennar söndru - 2006)
"jafet, farðu út í horn!"

i'm taking it off.

23. maí 2008 klukkan 20:05
Take Off - Jack Rokka ft. Betty Boo

já okei, mér fannst við hæfi að henda inn opnunarbloggi á þessa blessuðu síðu, svo hér kemur það. Hef ákveðið að það er of einmannalegt líf að blogga ekki - nýt mín ekki eins mikið eitthvað einn á vappi um netið og get ekki tjáð skoðun mína á hlutum eins og brjáluðum vörubílsstjórum, eða hvað mjólkin kostar mikið útí búð. Ekki það að ég sé eitthvað að fara að tjá mig um þannig hluti, en sé nú ekkert að því að benda á svonalagað.

En að öðrum málefnum, eins og það hversu unaðsleg tilfinningin er að vita að sumarið sé gengið í garð, en það kætir í mér kinnhestana að sjá sól og blíðu þegar út um eldhúsgluggan ég lít. Fór nú einmitt í eitt stykki fínt sólbað í dag, og var það nú bara verulega þæginlegt, eða hvað?

Hvernig stóð annars á því að Frikki og Regína komust áfram í gær? Nei ég bara spyr, langar að vita. Allavegana verður forvitnilegt að sjá hvernig fer á morgun. Er samt kominn með ágætt ógeð af laginu, en það er líka í fínu lagi. Hvað var annars málið með sjóræningjana? Mér fannst írski kalkúnninn nú mun skárri.

Annars þá var hlegið ágætlega dátt þegar að Anika ákvað að sýna okkur söndru mynd af sér með gleraugu. Þá bar henni súld í brún og leit hún niður er hún sagði, "Guð, að sjá mig með þessi gleraugu þarna." Þetta leiddi til þess að Sandra skellti á móti, "Já vá, ég var búin að gleyma hvað það fór þér vel að vera með gleraugu." Mér þótti nauðsynlegt að koma með mótsvar, en það besta sem mér datt í hug var, "Já, afhverju ertu hætt að ganga með þau?"

Svolítið gaman að segja frá því að hún Anika, mín kæra Anika, var einmitt með gleraugun á þegar þetta atvik átti sér stað. Ææ, mig langaði nú bara að deila þessu skemmtilega atviki með ykkur, þó því hafi nú verið deilt ágætlega fyrir.

nýtt upphaf.

23. maí 2008 klukkan 12:46
nýtt upphaf?
mér lýst vel á það.
heimta 28 komment á næstu 27 mínútunum.
annars fer ég í fýlu.
fokkjú, loveeet!

áfram írland!

Vinamyndbönd a lá Sandra (2/3)

31. júlí 2007 klukkan 17:46


njótið ;)

Vinamyndbönd a lá Sandra (1/3)

13. júlí 2007 klukkan 15:57


Já við erum asnarleg :)

Sant íslenskt framhald af sakamáli

28. júní 2007 klukkan 17:28
Hérna hef ég ákveðið að skila inn framhaldi af Sant Íslenskt Sakamál. Veit ég vel að þetta verður mjög vel liðið :)



3. Júlí, 2007 - Kl. 10:29

Klukkan er að renna hálf ellefu, og fólk farið að verða þreytt á bæjarvinnunni. Þegar við komum hér að sögu er stelpa nokkur að vinna við að kantskera um bæjinn, og er hún á söng og leik um austurveginn. Þessi stelpa ku að heita UNNUR SIF og mun restin skýra sig sjálf.

UNNUR: það var einusinni eva, í ofsagóðu skapi, hún vildi ekki epli, hún vildi banana.

Vindhviða.

UNNUR: BA-NA-NA-NA! Klapp, klapp!

Skuggaleg tónlist.

UNNUR: BA-NA-NA-NA! Klapp, klapp!

Úlfur ýlfrar.

UNNUR: BA-NA-NA-NANNA, BA-NA-NA-NANNA, BA-NA-NA-NA! KLAPP! KLAPP!

Þá sér hún nokkuð sem hún vildi að hún hefði aldrei séð, og öskrar píkuöskur nokkurt sem fáa svo mikið sem dreymir um að heyra.

Skoðanir um það hvað hún sá? :O:O:O:O

Framhald í næsta bloggi!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!1111!!1!!1!:SDFDSgsædihgsædoigsædghi
:)

Hrygglingssaga

26. júní 2007 klukkan 19:00

Okeeeeeeeeei ég semsagt var búinn að skrifa ógeðslega skemmtilega sögu, en svo datt það út og ég nenni ekki að skrifa það aftur.

"Jæja, klöppum nú .. Jafet, hættu að klappa!"

15. júní 2007 klukkan 16:55
Alltílagi gott fólk, hef ákveðið að kveikja aðeins á þræðinum á þessarri síðu aftur, þar sem sjá má að hún er svo mikið sem næstumþví dáin.

Svo standa mál með vexti að ég er að reyna að læra, en ég hreinlega bara nenni ekki að gera það.

Við Sandra og Tinna áttum okkur glaðan dag um daginn þegar við sátum fyrir framan tölvuskjáinn og horfðum á skemmtilegar vídjóklippur síðan fyrir 4 árum.. Skemmtilegt það..

Einnig er gaman að segja frá því að ég held að þetta verði bara virkilega leiðinleg helgi fyrir mig. Nema hvað að það er heimaleikur á morgun á móti liði sem heitir því skemmtilega nafni Snörtur, og svo verður líka þræl gaman að vakna í vinnu klukkan hálf tíu á morgun!

Anika og ég erum greinilega ætlaðir vinnufélagar, því að ég hef aldrei skemmt mér jafn mikið og þegar ég var að vinna með henni í fyrradag. Við gerðum skemmtilegan leik, en Palli vann svo það var ekki gaman lengur.

Þetta veður er greinilega betra en þessir blessuðu reykvíkingar voru að spá hérna fyrir austan, enda glampandi sólin komin enn á kreik.

Hvað meira finnst ykkur dágóðu aðdáendum mínum skemmtilegt að lesa?.. Einhverjir til í aðra sakamála sögu?.. Ha, Vordís?

Tillögur vel þegnar í "athugasemdum" - Jafet heiti ég, Sigfinnsson, og kveð að sinni.

Munið eftir strák sem hét Jafet..?

02. júní 2007 klukkan 21:53
jæja, ég sit hérna heima hjá lilju frænku og veiti söndru félagsskap meðan hún passar litlu ófreskjurnar hennar lilju.

Pælingin er svo að skella sér á ball með Bermuda í kvöld, og djamma alveg í nokkra hringi! Annars er lítið að frétta af mér og er þetta bara það sem fólk fær fyrir að heimta blogg frá mér..

var að horfa á bestu mynd allra tíma í gær.. Skólamorðin mun hún heita og var gerð fyrir afburðaríkum nokkrum sex árum og sportar nokkrum af vanmetnustu atriðum allra tíma eins og þessum.

 [jafet og júlía eru að leita að úlpunni hans jafets]
jafet: jeij þarna er úlpan mín. nei sko, þarna er köttur.. bídd þú hér á meðan ég fer og klappa honum.
júlía: okeeeei
jafet: [labbar í burtu og skilur júlíu eina eftir í myrkrinu]
júlía: [bíður eins og algjör hálfviti þannig að það leyni sér ekkert að það sé verið að fara að drepa hana]
viktor/morðingi: [kemur og kyrkir júlíu sem dettur niður dauð eftir 5 sekúndur og fer svo]
jafet: [kemur hlaupandi um leið og viktor er farinn] júlía júlía! kötturinn var algjör-- ó nei, hún er dauð..

og svo má líka telja þetta atriði sem mjög vanmetið fyrir frumlegheitin..

[sandra, jafet, aníta og max (viktor) eru í heimsókn hjá frk. púrsúlín (vigdís/skólastjórinn)]
sandra: má ég fá að skoða baðherbergið þitt? það er örugglega ógeðslega flott!
frk. púrsúlín: jamm endilega
sandra: [fer inn á klósett að skoða sjampó, ilmvötn og eyrnapinna]
"max": [kemur á eftir söndru og hengir hana á tösku, í stellingu sem hún hefði alls ekki getað bjargað sér frá dauðanum] (KALDHÆÐNI KALDHÆÐNI!!)
jafet: [kemur hlaupandi inn strax og morðinginn er farinn út] sandra, sandra, vaknaðu! ó nei, hún er dauð! (umhyggjusemin alveg..)

svo einu atriði seinna þegar skólastjórinn er myrtur fer ég í fyrsta sinn í allri myndinni að gráta.. svo var það líka eitt skemmtilegt mis-tekið atriði..

[sandra og jafet koma að líkinu á danskennaranum sínum - leiknum af anítu]
jafet: hver er þetta?
sandra: ég veit ekki [þau fara nær]
sandra&jafet: þetta er esmeralda danskennari!

[þau fara og ná í viktor og vigdísi]
viktor: ó nei, þetta er úrsúla danskennari.

mikil ósköp voru samskipti vanmetin árið 2001.

svo kom náttúrulega besta atriðið í allri myndinni sem enginn, nema viktor, vissi að myndi eiga sér stað.

[jafet ræðst á viktor eftir að hafa komist að því að karakterinn hans - max - væri búinn að myrða alla vini sína]
jafet: AFHVERJU GERÐIRU ÞETTA??
viktor/max: afhverju helduru?
jafet: ég veit ekki..
viktor/max: dettur þér engin ástæða í hug?
jafet: nei..
viktor/max: dettur þér eeeengiiiin ástæða í hug?
jafet: nei.
viktor/max: munið eftir strák sem hét davíð?
jafet: jáá..
viktor/max: honum var ÁVALT ssssstrítt!
jafet: ...
viktor/max: og þið eruð einmitt þið!
jafet: [yfirbugar viktor og hendir honum á gólfið - lemur hann með hárþurrku og kæfir hann loks með kodda á þrem sekúndum] hann drap vini mína, svo ég drap hann!

og þetta vildum við setja á vídjóleiguna á seyðisfirði.. við vorum virkilega bjartsýnir krakkar eins og sjá má

en nú vill helvítis fyllibyttan fá tölvuna svo að sandra fær sínu framgengt og hættir þá vonandi að væla (og vonandi að drekka líka.. sjæææs)

jaa

12. maí 2007 klukkan 16:09

Lof mér að breyta því sem ég sagði hér áður..

SUMARPÁSA! :)

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Hér kemur spurning.